| Ašstaša ķ Bjįlkabę viš Heytjörn
|
Aðstaða í Bjálkabæ við Heytjörn
Þessi glæsilegu hús hafa upp á margt að bjóða. Þú getur verið einn í ró og næði með fjölskyldunni og notið þess að vera í rólegu umhverfi Bjálkabæjar, þar sem hvert hús um sig er umvafið trjám og útaf fyrir sig. Einnig er hægt að leigja öll húsin út í einu og mynda þannig skemmtilega hópstemmingu. Stór verönd er umhverfis öll húsin.
Þú getur valið um að hafa uppábúin rúm eða komið með eigin rúmföt til sparnaðar.
Hvert hús er með tvö herbergi þar sem er tvöfalt rúm niðri og einfalt rúm uppi. Öll rúmin eru sérsmíðuð og ekkert þeirra er eins. Snyrtilegt bað með góðri sturtu og innréttingu er í hverju húsi.
Eldhúsið er útbúið eldavél, viftu, örbylgjuofni og ískáp.
Borðstofa þar sem gert er ráð fyrir 6 manns við borðið. Átta manns geta gist í húsinu en þá er gert ráð fyrir svefnsófa í stofu.
Sjónvarp er í öllum húsunum. Gervihnattatenging er í húsunum þannig að hægt er að velja fjöldann allan af erlendum stöðvum. Einnig eru allar helstu íslensku stöðvarnar.
Ef ekkert skemmtilegt er í sjónvarpinu þá er tilvalið að kveikja upp í arninum og njóta þess með ástvinum þínum að horfa á síbreytilegan eldinn og njóta hlýleika fjölskyldu friðarins.
Þráðlaus nettenging er í húsunum fyrir þá sem geta ekki sleppt takinu af tölvunni.
Grillaðstaða er við hvert hús og einnig er glæsileg sameiginleg útigrillaðstaða á útisvæði.
Heitur pottur er á “Stone Hench” útisvæðinu þar sem listverk eru úr steinum og tré í anda Bjálkabæjar við Heytjörn.
Þessi glæsilega aðstaða er rétt við borgina. Þú ert ekki nema 5 mínútur í Árbæjarlaugina og ekki nema 10 mínútur í bæinn.
Þetta verður ógleymanleg ánægja fyrir þig og þína. |


 |
| Ašstaša ķ Hestvķk viš Žingvallavatn
|
Þetta glæsilega hús hefur upp á allt að bjóða fyrir fagurkerann. Þú getur verið einn í ró og næði eða með fjölskyldu þinni og notið þess að vera í friðsælu umhverfi Þingvallavatns.
Þú getur valið um að hafa uppábúin rúm eða komið með eigin rúmföt til sparnaðar.
Húsið er með hjónaherbergi og síðan er stórt svefnloft. Snyrtilegt bað með góðri sturtu og innréttingu.
Eldhúsið er með gas-eldavél, ofni, örbylgjuofni og ískáp.
Borðstofa þar sem gert er ráð fyrir 6 manns við borðið.
Sjónvarp er í húsinu.
Ef ekkert skemmtilegt er í sjónvarpinu þá er tilvalið að kveikja upp í arninum og njóta þess með ástvinum þínum að horfa á síbreytilegan eldinn.
Útigrill er á veröndinni ef það hentar að elda úti í náttúrulegu umhveri Þingvalla.
Heitur pottur er á veröndinni en verönd er umhverfis allt húsið og því hægt að finna ákjósanlegan stað úti í sólinni.
Hestvík er glæsileg aðstaða við Þingvallavatn. Þú ert ekki nema 40 mínútur í bæinn.
Láttu drauminn rætast!
|
 |
 |
 |
|